fbpx

Arctic Star Marine Collagen 90stk.

$39.99

Arctic Star Marine Collagen inniheldur:

  • Kollagen frá þorskroði
  • Atlanshafssæbjúgu
  • Vítamín C
Category:

Arctic Star Marine Collagen inniheldur:

  • Kollagen frá þorskroði
  • Atlanshafssæbjúgu
  • Vítamín C

Eiginleikar Arctic Star Marine Kollagen:

Arctic Star Marine Kollagen er framleitt úr Atlantshafs-þorskroði og sæbjúgum sem eru veidd í Norður-Atlanshafinu. C-vítamín styður við eðlilega myndun kollagens sem styrkir brjósk, bein og húð líkamans. C-vítamín styrkir einnig starfsemi taugakerfisins og ónæmiskerfisins. Einnig stuðlar C-vítamín að því að verja frumur líkamans fyrir oxunarálagi og draga úr þreytu og lúa. Arctic Star Marine Collagen inniheldur yfir 50 tegundir af næringarefnum, eins og kollagen, amínósýrur, taurín, chondroitin súlfat, peptíð og fjölbreytt vítamín og steinefni.

Hvað er kollagen:

Kollagen (collagen) er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum,  sinum og beinum mannslíkamans. Einnig er kollagen mjög stór hluti af húð, hári og nöglum.

Sæbjúgu frá Atlanshafinu eru þekkt fyrir:

  • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald.

Arctic Star Marine Collagen inniheldur aðalega:

Kollagen frá þorskroði

Chondroitin súlfat

Amínósýrur sem eru undirstaða fyrir uppbyggingu próteina. Sæbjúgu innihalda mikilvægar amínósýrur sem mannslíkaminn getur ekki framleitt sjálfur svo sem:

  • Metíónín
  • Lýsín
  • Tryptófan
  • Valín
  • Treónín
  • Leucine
  • Isoleucine
  • Fenýlalanín

Mucopolysaccharide 

Saponins

Vítamín C sem eru þekkt fyrir:

  • Stuðla að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks, beina og húðar.
  • Stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og ónæmiskerfisins
  • Stuðla að því að verja frumur fyrir oxunarálagi.
  • Stuðla að því að draga úr þreytu og lúa.
  • Stuðla að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum.
  • Stuðla að endurnýjun afoxaðs forms E-vítamíns.
  • Auka upptöku járns.
Næringargildi 3 stk.    %NV*
Þurrkuð sæbjúgu 410 mg **
Kollagen 410 mg **
Þar af

Prótín

Fat

 

698 mg

10 mg

Vítamín C 80mg 100%

* % af viðmiðunargildi næringarefna fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð.

** Ráðlagður dagskammtur er ekki ákvarðaður með reglugerð.

Ráðlagður neysluskammtur: 2-4 hylki á dag.

Neytið ekki meira en sem nemur ráðlögðum skammti.

Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geymist þar sem börn ná og sjá ekki til.